Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnufélagið Valur

Fjármálastjóri

Knattspyrnufélagið Valur óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í stöðu fjármálastjóra félagsins. Um fullt starf er að ræða á skemmtilegum og lifandi vinnustað. Framundan eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegri stjórn fjármála og reksturs
  • Ábyrgð, umsjón og eftirfylgni með áætlanagerð og reikningshaldi
  • Þátttaka í stefnumótun og umsjón með þróun og innleiðingu verklags
  • Eftirlit, greining og gerð rekstraryfirlita og stjórnendaupplýsinga
  • Uppgjör, launamál og almenn bókhaldsverkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði viðskipta, fjármála, endurskoðunar eða skyldra greina
  • Reynsla og áhugi á fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörum
  • Reynsla eða áhugi á störfum innan íþróttahreyfingarinnar
  • Góð kunnátta í DK er kostur
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Um Val:

Valur er eitt sigursælasta íþróttafélag landsins og það sigursælasta þegar tekið er tillit til Íslands- og bikarmeistaratitla í meistaraflokki karla og kvenna í þremur vinsælustu íþróttagreinunum, handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu. Á undanförnum áratugum hefur félagið einbeitt sér að starfi í þessum þremur íþróttagreinum. Valur er félag með ríka hefð fyrir aga, sigurvilja, dugnaði og heilbrigði. Á Hlíðarenda vinna allir að sama markmiði, þ.e. að halda merki Vals hátt á lofti með einkunnarorðunum: Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði.

Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225

Advertisement published3. September 2025
Application deadline16. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hlíðarendi 105
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Chartered accountantPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Precision
Professions
Job Tags