Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Leiðtogi á fjármálasviði – Fjármálaáætlanir, uppgjör og greiningar

Við leitum að metnaðarfullum aðila til að sinna áætlunarvinnu og fjármálagreiningu hjá Bílaumboðinu Öskju, Dekkjahöllinni, Landfara og Bílaumboðinu Unu. Félögin eru dótturfélög Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Við erum að leita að einstaklingi með sterka greiningarhæfileika sem getur sett gögn fram á skýran og áhrifaríkan hátt fyrir stjórnendur. Þetta er frábært tækifæri til að hafa mikil áhrif í samstarfi við stjórnendur, stuðla að enn frekari vexti fyrirtækjanna og byggja upp nýjar lausnir.

Um er að ræða lykilstöðu sem ætlað er að tryggja yfirsýn hjá fyrirtækjunum og styðja við ákvarðanatöku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra undirbúningi og samþættingu á lykiltölum og fjármálaupplýsingum fyrir stjórnendur og tengda aðila
  • Greining gagna og stuðningur við stjórnendur í stefnumótandi ákvörðunun
  • Ábyrgð á mánaðarlegum, ársfjórðungs- og árlegum uppgjörum
  • Samhæfing fjárhagsáætlunar við markmið fyrirtækisins og þróun reglulegrar langtímaspár og stýring áhættu og tækifæra
  • Tryggja að endurskoðaðar spár séu í samræmi við nýjustu sölu- og rekstraráætlanir
  • Samstarf við innri og ytri endurskoðendur til að tryggja árangur í úttektum
  • Fylgjast náið með fjárstreymi og vinna með viðskipta- og rekstrarhópum til að tryggja sem bestan árangur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun s.s. mastersgráða í reikningsskilum og endurskoðun eða fjármálum, löggiltur endurskoðandi eða önnur sambærileg menntun
  • Að minnsta kosti tveggja ára reynsla af fjármálagreiningu eða rekstrartengdum fjármálum
  • Djúp þekking á IFRS og öðrum reikningsskilastöðlum
  • Reynsla og færni í notkun fjárhagskerfa og greiningartóla (t.d. SAP, BC, PowerBI)
  • Framúrskarandi greiningarhæfileikar og skilningur á hvernig tölur eru nýttar til að bæta rekstur og mikil færni í að miðla flóknum fjármálaupplýsingum til stjórnenda
  • Haldbær reynsla af því að auka rekstrarárangur með eftirfylgni lykilmælikvarða, sviðsmynda- og frávikagreininga
  • Reynsla af eftirfylgni og greiningu á fjármálalegri áhættu og tækifærum
  • Reynsla af því að setja flókin gögn fram á hagnýtan og skýran hátt þannig að upplýsingarnar styðji við ákvarðanatöku í rekstri fyrirtækisins
  • Þekking á fjárstýringu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Advertisement published27. August 2025
Application deadline5. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Chartered accountant
Professions
Job Tags