Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Bifvélavirkjar

Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða færa bifvélavirkja til starfa. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls í Reykjavík.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
  • Þjónustuskoðanir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bifvélavirkjun
  • Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
  • Ökuréttindi
Af hverju Askja?
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
  • Líkamsræktaraðstaða
Advertisement published5. August 2025
Application deadline16. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Journeyman license
Professions
Job Tags