

Launaráðgjafi í Kjarna
Origo leitar að reynslumiklum ráðgjafa í þjónustu við viðskiptavini Kjarna, sem er mannauðs- og launakerfi sem sér um allt frá ráðningu til starfsloka. Launakerfið er veigamikill hluti af Kjarna og til þess að aðstoða okkar viðskiptavini í að nýta kerfið eins og best verður á kosið, höfum við frábært teymi ráðgjafa og forritara. Við erum núna að styrkja ráðgjafahópinn okkar í launahluta kerfisins.
Ef þú býrð yfir góðri þekkingu á sviði launavinnslu og hefur áhuga á að vinna í skemmtilegu umhverfi með góðum samstarfsfélögum og fjölbreyttum hópi viðskiptavina þá gæti þetta starf verið kjörið fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þú munt leiða innleiðingar á Kjarna mannauðs- og launakerfi
-
Þú munt vinna náið með viðskiptavinum Kjarna í launahluta kerfisins, sem flestir eru launafulltrúar
-
Þú munt veita ráðgjöf um virkni kerfisins og hjálpa viðskiptavinum að nýta kerfið að fullu
-
Þú munt taka þátt í að þróa kerfið áfram með okkur
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Minnst þriggja ára reynsla af launavinnslu og launabókhaldi er skilyrði
-
Þekking á Kjarna eða öðrum sambærilegum launakerfum
-
Góð greiningarhæfni og geta til að leysa úr flóknum úrlausnarefnum
-
Nákvæm og öguð vinnubrögð
-
Góð almenn tæknikunnátta og færni á Excel
-
Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
-
Góð samskiptahæfni og mikil þjónustulund
Fríðindi
-
Að vera hluti af frábæru teymi ráðgjafa í mannauðs- og launalausnum
-
Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki
-
Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf
-
Vinnustað sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti
-
Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
-
Hvatningu til að þróast í starfi og efla þekkingu
-
Ýmis fríðindi og styrkir
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Nánari upplýsingar veitir Dröfn Guðmundsdóttir, [email protected]
Kjarni er mannauðs- og launakerfi sem fagnaði 10 ára afmæli á þessu ári og er þróað hjá Origo. Kerfið er í notkun hjá tugum fyrirtækja og sveitarfélaga á Íslandi.
Á dögunum var fyrirhuguð sameiningu Kjarna og Moodup, sem þróar starfsánægjumælingar, kynnt og verður því til sjálfstætt félag sem sérhæfir sig í mannauðs, launa- og starfsánægju lausnum. Með sameiningu Kjarna og Moodup verður til eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði mannauðstækni.











