Hjúkrunarfræðingur í DAM teymi geðþjónustu
DAM-teymi Landspítala auglýsir stöðu hjúkrunarfræðings sem lokið hefur klínísku meistaranámi í geðhjúkrun og/eða hlotið sérfræðileyfi Embættis landlæknis í geðhjúkrun.
Teymið er þverfaglegt meðferðarteymi og eitt af sérhæfðum göngudeildarteymum í meðferðareiningu lyndisraskana. Það sinnir um 70 einstaklingum með alvarlegan og langvarandi tilfinningalegan óstöðugleika og er staðsett á Kleppi.
Teymið veitir díalektíska atferlismeðferð (DAM) ásamt annarri þjónustu við notendur og fjölskyldur þeirra. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, þverfaglega teymisvinnu og stöðugar umbætur. Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri þjálfun og faglegri leiðsögn. Unnið er í dagvinnu og starfshlutfall er 80-100%. Ráðning er frá 1. maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Meistaragráða í klínískri geðhjúkrun og/eða sérfræðileyfi í geðhjúkrun
Þekking á og/eða reynsla af díalektískri atferlismeðferð er kostur
Einlægur áhugi á geðhjúkrun og þróun hjúkrunar í geðþjónustu
Áhugi á þjónustu við einstaklinga með alvarlegan og langvarandi tilfinningalegan óstöðugleika og fjölskyldur þeirra, þekking og reynsla af þjónustu við hópinn er kostur
Vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
Stundvísi, áreiðanleiki og lipurð í samskiptum
Góð íslensku- og enskukunnátta
Responsibilities
Klínísk vinna: Mat á þörfum einstaklings, mat á geðrænum og líkamlegum einkennum, þróun og innleiðing einstaklingsbundinna meðferðaráætlana og málastjórn. Sérhæfður stuðningur við fjölskyldur notenda. Tækifæri til þjálfunar í díalektískri atferlismeðferð og starfsþróunar sem meðferðaraðili.
Þróunar-, gæða- og rannsóknarstarf: Þátttaka í verkefnum sem lúta að þróun þjónustu við notendur og fjölskyldur þeirra. Þátttaka í eflingu hjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala. Mat á árangri þjónustu og umbótum. Þátttaka í rannsóknarstarfi.
Kennsla og fræðsla: Þátttaka í kennslu- og fræðsluverkefnum innan og utan Landspítala. Fagleg klínísk leiðsögn hjúkrunarfræðinga.
Ráðgjöf: Samstarf við geðhjúkrunarfræðinga og sérfræðinga í geðhjúkrun ásamt þátttöku í þverfaglegri ráðgjöf.