

Hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslu Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á Selfossi. Um er að ræða starf á heilsugæslu auk fangelsisheilsugæsluhjúkrunar.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
-
Um er að ræða almenna heilsugæsluhjúkrun og fangelsisheilsugæsluhjúkrun auk annara tilfallandi verkefna sem tilheyra heilsugæsluhjúkrun
-
Starfið er fjölbreytt með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
-
Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
-
Starfsleyfi landlæknis.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.






























