

Sumarstörf á HSU - Sjúkraþjálfari/Sjúkraþjálfunarnemi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara eða sjúkraþjálfunarnema í fullt starf í sumar.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
-
Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf fyrir metnaðarfullan einstakling, rétt fyrir utan höfuðborgina
-
Starfið er afleysingarstarf á lyflækninga- og göngudeild HSU Selfossi og mögulega á fleiri deildum.
-
Þverfagleg samvinna innan hús
-
Íslenskt starfsleyfi Landlæknis sem sjúkraþjálfari eða framvinda í námi
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Mjög góð íslenskukunnátta

















