

Forfallakennari - Setbergsskóli
Setbergsskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 420 auk þess sem starfrækt er sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vinsemd og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast tilfallandi og/eða fasta forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi.
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni
- Vinnur eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum
- Er í samstarfi við starfsfólk sérdeildar vegna nemenda með einhverfu
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar – og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufærði námsgreina
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2025.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið [email protected].
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.





































