Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Ert þú reynslumikill CRM / Dynamics 365 sérfræðingur?

Wise leitar að öflugum aðila í vaxandi teymi. Starfið felst í ráðgjöf og þjónustu tengdum Dynamics 365 viðskiptalausnum í skýinu, stafrænum umbreytingaverkefnum og öðrum spennandi verkefnum, auk þátttöku í vöruþróun fyrir hóp viðskiptavina í hinum ýmsu geirum atvinnulífsins. Viðkomandi fær tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif og skipta máli fyrir viðskiptavini og stuðla að árangri þeirra.

Við leitum að kraftmiklum, sjálfstæðum einstaklingum sem eiga auðvelt með að vinna í hóp, hafa áhuga á hugbúnaði og nýjustu tækni við hönnun og þróun hugbúnaðar.

Hjá Wise færð þú tækifæri til að

  • Hafa áhrif á áherslur og frekari mótun teymis
  • Framkvæma ferla- og þarfagreiningar fyrir viðskiptavini
  • Hanna og þróa lausnir fyrir viðskiptavini
  • Veita framúrskarandi ráðgjöf
  • Innleiða lausnir og veita stuðning til viðskiptavina

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði upplýsingatækni eða önnur reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af CRM lausnum / Dynamics 365 Sales / Dynamics 365 Field Service
  • Reynsla af Microsoft Power Platform (Power BI, Power Apps, Power Automate)
  • Áhugi á tækni og þróun
  • Rík þjónustulund
  • Lausnamiðuð hugsun og aðlögunarhæfni
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af forritun er kostur
  • Reynsla af skjala- og gæðamálum er kostur
  • Reynsla af Microsoft 365 (SharePoint, Teams, OneDrive, o.s.frv.) er kostur

Við hlökkum til að fá umsóknina þína

Tekið er á móti umsóknum til og með 19. janúar 2025. Frekari upplýsingar veita Gunnar Örn Haraldson, Tech Lead 365 (gunnaroh@wise.is) og Harpa Hrund Jóhannsdóttir, á mannauðssviði (harpah@wise.is).

Advertisement published30. December 2024
Application deadline19. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags