Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

Deildarstjóri við leikskóladeild Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Leitað er að deildarstjóra sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 - 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðakjarna.

Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans bsskoli.is
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Færni til að innleiða nýjungar.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Advertisement published12. March 2026
Application deadline9. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Breiðdalsvík- og Stöðvarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags