
Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt er sex deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára og er opnunartími skólans er 7:45- 16:15 alla virka daga.
Leikskólinn starfar í anda Uppbyggingarstefnunnar og með ART. Ásamt vinnu með farsæld barna í samvinnu við Fjarðabyggð.
,,Allir geta eitthvað, enginn getur allt" eru einkunnarorð skólans og leiðarljós okkar í öllu starfi. Því fær hver og einn notið sinna styrkleika því þannig byggjum við upp sterka sjálfsmynd.
Við sem erum í Lyngholti erum sjálfstæð og glöð og berum virðingu fyrir umhverfi okkar. Við tileinkum okkur jákvæðni, gleði, hreinskiptni og virðingu.

Starf við sértækan stuðning við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Starf við sértækan stuðning við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði er laust til umsóknar.
Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Skólastarfið er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".
Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á þjálfun og umönnun nemenda með sérþarfir.
- Vinna við þjálfun og umönnun nemenda með sérþarfir.
- Aðstoð við nemendur í daglegum athöfnum.
- Leit að leiðum til að ýta undir færni og sjálfstæði nemenda.
- Styður við réttindi nemenda og stuðlar að því að þeir njóti bestu þjónustu.
- Vinna samkvæmt stuðningsáætlun nemenda.
- Samstarf við annað starfsfólk, nemendur, foreldra og forráðamenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi/iðjuþjálfi er æskilegt.
- Reynsla af starfi með börnum með sérþarfir er æskileg.
- Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg.
- Þekking á sjónrænu skipulagi.
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður, ásamt skipulögðum vinnubrögðum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Advertisement published12. March 2026
Application deadline9. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Leikskólakennarar við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Deildarstjóri við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Sérkennslustjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Leikskólakennarar við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Deildarstjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir einstaklingi til að sinna stöðu snemmtækrar íhlutunar
Garðabær

Kennarastöður við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

Umsjónarkennari við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

Deildarstjóri við leikskóladeild Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

Leikskólakennarar óskast í Teigasel Akranesi
Leikskólinn Teigasel

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari í tímabundna afleysingu - Víðivellir
Hafnarfjarðarbær