Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt

Leikskólakennarar við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði

Störf leikskólakennara við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði eru laus til umsóknar.
Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".
Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
  • Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
  • Önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem kennari
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður, ásamt skipulögðum vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Advertisement published12. March 2026
Application deadline9. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags