Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt

Deildarstjóri við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði

Starf deildarstjóra við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði er laust til umsóknar.
Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".
Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans: lyngholt.leikskolinn.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skapa hvetjandi námsumhverfi og vera faglegur leiðtogi.
  • Vinna af fagmennsku að farsæld, velferð og menntun barna.
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu og framkvæmd á starfi deildarinnar.
  • Leggja sig fram um að skapa umbótamiðað lærdómssamfélag.
  • Vinna í stjórnendateymi leikskólans. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Góð samskiptahæfni og frumkvæði.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Advertisement published12. March 2026
Application deadline9. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags