Baugur
Baugur
Baugur

Aðstoðarleikskólastjóri

Í Baugi starfa milli 50 og 60 manns sem sameinast á hverjum degi um það að hafa gaman. Gleði er að okkar mati lykillinn að starfsánægju. Við höfum gert með okkur sáttmála sem stuðlar að vellíðan starfsfólks en skýr, skilvirk, hlý og jákvæð samskipti eru þar í forgrunni. Samvinna og metnaður til að gera vel sameinar okkur alla daga og skapar okkar frábæru liðsheild!

Leikskólinn Baugur er 8 deilda leikskóli með 143 börnum í Kórahverfi í Kópavogi. Leikskólinn leggur áherslu á að skapa fjölbreytilegt leikumhverfi sem ýtir undir ímyndunarafl, sköpunarkraft og tjáningu barnanna. Unnið er að innleiðingu "Uppeldi til ábyrgðar" en finna má nánari upplýsingarum leikskólann á http://baugur.kopavogur.is/.

Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðarmaður og staðgengill leikskólastjóra. Hann er leiðandi aðili í skipulagi faglegs starfs innan leikskólans og tekur virkan þátt í stjórnun og umsjón starfsmannamála ásamt virku samstarfi við foreldra. Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Kópavogsbæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri skólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins
  • Er faglegur leiðtogi og mentor fyrir aðra starfsmenn
  • Tekur þátt í launavinnslu, skýrslu- og áætlanagerð
  • Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Sérhæfð hæfni á leikskólastigi, sem felur í sér a.m.k. 90 ECTS námseiningar sem tengjast aðalnámskrá leikskóla og menntunarfræðum leikskóla
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunafræða
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Forystuhæfni og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og færi til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Styttri vinnuvika - stytting að hluta til notuð í páskafrí,  tvö vetrarfrí og jólafrí.

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Vekjum athygli á nýjum nálgunum er varða bætt starfsumhverfi barna og kennara í leikskólum Kópavogs. Sjá nánar hér

Advertisement published13. March 2026
Application deadline27. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Baugakór 36, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags