Fellaskóli Fellabæ
Fellaskóli Fellabæ
Fellaskóli Fellabæ

Skólastjóri Fellaskóla Fellabæ, við þéttbýli Egilsstaða

Laus er til umsóknar 100% staða skólastjóra við Fellaskóla frá og með næsta skólaári, eða frá 1. ágúst 2026.

Fellaskóli í Fellabæ er grunnskóli í þéttbýli við Egilsstaði. Í Fellaskóla er lögð er áhersla á að efla bókvit, verkvit og siðvit jöfnum höndum.

Í skólanum er nemendum skipt niður á þrjú stig; yngsta stig (1.–4. bekk), miðstig (5.–7. bekk) og unglingastig (8.–10. bekk). Á hverju stigi starfa kennarar og annað fagfólk saman í teymum. Starfsfólk er 27 talsins í mismunandi stöðugildum og nemendur um 82.

Leik - og grunnskólinn á Borgarfirði eystra er rekin sem sjálfstætt starfandi deild undir Fellaskóla. Nemendur grunnskólans á Borgarfirði eystra stunda að hluta til nám við Fellaskóla. Þar eru 5 starfskraftar í mismunandi stöðugildum og 11 nemendur samtals.

Við skipulag kennslu er horft til þess að nemendur eru á hverjum tíma mislangt komnir á mismunandi sviðum þroska. Nemendur hafa einnig mismunandi styrkleika, áhugasvið og getu. Námi og öðru starfi skólans er ætlað að stuðla að alhliða þroska nemandans út frá forsendum og hæfileikum hvers og eins. Skólastarfið miðast við að stuðla jafnt að tilfinningalegum og félagslegum þroska sem og vitsmunalegum.

Næsti yfirmaður skólastjóra er sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu Múlaþings.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir skólanum faglega forystu
  • Leiðir samstarfið við aðila skólasamfélagsins  
  • Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans 
  • Stýrir og ber ábyrgð á mannauðsmálum skólans, s.s. ráðningu, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Mótar stefnu skólans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámsskrá grunnskóla og stefnu sveitarfélagsins
  • Stuðlar að farsæld nemenda og starfsfólks í daglegu skólastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í grunnskóla
  • Stjórnunar- og skipulagshæfileikar og framúrskarandi samskiptafærni
  • Þekking og forystuhæfileikar til að leiða framsækna skólaþróun
  • Góð íslensku-og enskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í máli og riti
  • Viðbótarmenntun í stjórnun skilyrði
  • Reynsla af stjórnun mannauðs æskileg
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published20. February 2026
Application deadline22. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Einhleypingur 2, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags