
Skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Víðistaðaskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum er starfrækt frístundaheimilið Hraunkot fyrir nemendur í 1.-4. bekk og félagsmiðstöð fyrir eldri nemendur.
Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga sem býr yfir víðtækri þekkingu á skólastarfi, hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu námsumhverfi og getu til að leiða skólann áfram undir einkunnarorðum hans; ábyrgð – virðing – vinátta. Viðkomandi mun þróa áfram jákvæðan skólabrag sem stuðlar að vellíðan, samvinnu, fjölbreytileika og sköpun í samræmi við menntastefnu Hafnarfjarðar.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir árangursdrifinn og hugmyndaríkan einstakling til að byggja upp eftirsóknarverðan vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skapa og móta umhyggjusamt og framsækið skólastarf í heildstæðum skóla
- Veita skólanum faglega forystu í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og menntastefnu Hafnarfjarðarbæjar
- Stýra daglegri starfsemi og sýna ráðdeild í rekstri
- Sjá um mannauðsmál svo sem ráðningar, vinnutilhögun og starfsþróun
- Þróa skólabrag í árangursríku samstarfi við starfsfólk, nemendur og foreldra
- Vera í samvinnu við fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu um framtíðarsýn og stefnumótun
- Stuðla að árangri og farsæld nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur, helst á sviði stjórnunar og/eða menntavísinda
- Kennslureynsla og farsæl stjórnunarreynsla í grunnskóla áskilin
- Leiðtogahæfni og reynsla af faglegri forystu á sviði skólamála
- Reynsla af áætlanagerð, rekstri og fjármálastjórnun
- Reynsla af mannauðsmálum
- Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Góð íslensku (C1) – og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð færni í upplýsingatækni
Hafnarfjarðarbær vinnur samkvæmt verklagi um snemmtækan stuðning við leik- og grunnskólabörn, þar sem megináhersla er lögð á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum, aukið samstarf í nærumhverfi barnsins og framkvæmd í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi grunnskólastjóra ásamt afriti af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, í síma 585-5800, [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic
English










