

Kennari í tímabundna afleysingu - Víðivellir
Leikskólinn Víðivellir óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan kennara í tímabundna afleysingu til 15.maí. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Einnig er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.
Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum og að börn og fjölskyldur þeirra fái öfluga og samþætta þjónustu þegar á þarf að halda.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
- Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðaðlámskrá leikskóla
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi á leikskólum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni, lausnarmiðun og sveigjanleiki
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Bókasafnskort
- Sundkort
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 26.mars 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veita Svanhildur Birkisdóttir, [email protected] leikskólastjóri og Eyrún Edvardsdóttir, [email protected], aðstoðarleikskólastjóri s.5553599
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic











































