Polarn O. Pyret
Polarn O. Pyret
Polarn O. Pyret

Viltu vinna í líflegu og jákvæðu umhverfi með frábæru teymi?

PO.P í Kringlunni leitar að jákvæðum, ábyrgum og þjónustuliprum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttri verslunarvinnu í barnavöruverslun þar sem gæðin og gleðin ráða ríkjum.

Við bjóðum upp á skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem góð liðsheild og jákvæð orka skipta höfuðmáli. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni:

  1. Þjónusta við viðskiptavini
  2. Móttaka og framsetning á vöru
  3. Afgreiðsla netpantana
  4. Vaktir eru kl. 10–17 og 12–18:30

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu og þjónustu er mikill kostur

  • Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót

  • Sjálfstæði, ábyrgð og dugnaður

  • Áhugi á tísku og barnavörum er kostur

  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði

  • Umsækjendur 30 ára og eldri eru sérstaklega hvattir til að sækja um

Við leggjum ríka áherslu á að veita hlýlega, faglega og persónulega þjónustu – því við vitum að það skiptir máli 💛

Hljómar þetta eins og eitthvað fyrir þig? Sendu okkur umsókn ásamt ferilskrá og stuttu kynningarbréfi – við hlökkum til að heyra frá þér!

Auglýsing birt8. apríl 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kringlan 8-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar