Fífusalir
Fífusalir
Fífusalir

Vilt þú bætast í stjórnendateymi Fífusala?

Heilsuleikskólinn Fífusalir er 6 deilda leikskóli í Salahverfi í Kópavogi. Þar starfa um 35 manns með 105 börnum. Leikskólinn er Heilsuleikskóli og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttir. Einnig er unnið eftir kenningum John Dewey og Berit Bae.
Frábær starfsmanna- og barnahópur.

Athygli er vakin á því að Kópavogsbær hefur samþykkt 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla ásamt auknum sveigjanleika og takmörkunum í opnunartíma leikskóla í dymbilviku, milli jóla og nýárs og vetrarfríum. Hér má sjá meira um það Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogsbær (kopavogur.is)

Einkunnarorð skólans eru: Virðing - Uppgötvun - Samvinna

Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á http://fifusalir.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og skipulagning deildar 
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn og umönnun eftir þörfum
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
  • Starfið felur í sér náið samstarf við aðra stjórnendur skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
Fríðindi í starfi
  • Íþróttastyrkur
  • Frítt í sund
  • Vinnustytting er að hluta til tekin á milli jóla- og nýárs, í dymbilviku og tveimur vetrarfríum
  • Frír matur
Auglýsing stofnuð24. júní 2024
Umsóknarfrestur9. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Salavegur 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar