Leikskólinn Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból

Leikskólinn Kirkjuból auglýsir eftir deildarstjóra

Deildarstjóri óskast í 1. árs afleysingarstarf á yngstu deild leikskólans Kirkjubóls.

Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Áherslur í starfi með börnum eru vellíðan, gleði, sjálfstæði og lýðræði ásamt náttúru og umhverfi.

Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.

Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið. Nýverið voru samþykktar spennandi tillögur um bætt starfsumhverfi leikskóla sem taka gildi í byrjun árs 2024.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.

Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði. Miðað er við stig B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi fyrir starfsmenn
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Að auki fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 0,25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 0,5% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
Auglýsing stofnuð4. júlí 2024
Umsóknarfrestur26. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Kirkjulundur 1, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar