Urriðaból Garðabæ
Urriðaból Garðabæ

Deildarstjóri óskast í heilsuleikskólann Urriðaból.

Leikskólinn Urriðaból er 12 deilda leikskóli, staðsettur á tveimum starfstöðvum, sex deildir við Kauptún 5 og sex deildir við Holtsveg 20 í fallegu og fjölbreyttu umhverfi í Urriðaholti 210 Garðabæ. Í leikskólanum dvelja börn á aldrinum 1 árs til 5 ára.

Einkunnarorð leikskólans eru: Heilbrigð sál í hraustum líkama.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.

Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að ganga til liðs við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Gunnarsdóttir, leikskólastjóri, Elsa María Gunnarsdóttir og Heiðar Örn Kristjánsson, aðstoðarleikskólastjórar í síma 570-4920 og 570-4830. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið urridabol@skolar.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra

·         Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans

·         Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni

·         Sér um foreldrasamstarf á deildinni

·         Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)

·         Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla

·         Reynsla af starfi á leikskólastigi

·         Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði. Miðað er við stig B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

·         Góð samskiptahæfni

·         Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

·         Góð tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

·         Á Urriðabóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks

·         Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum

·         25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar

·         Heilsustyrkur

·         Viðverustefna

Auglýsing stofnuð1. júlí 2024
Umsóknarfrestur15. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Holtsveg 20
Kauptún 5
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar