Regnboginn
Regnboginn
Regnboginn

Við leitum að dásamlegum samstarfsaðila

Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða leiðbeinanda í 100% stöðu.

Regnboginn er 3ja deilda, einkarekinn leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík. Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.

Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.

Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.

Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dröfn Ámundadóttir, skólastjóri, í netfanginu regnbogi@regnbogi.is

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og stundvísi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur8. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Bleikjukvísl 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar