Flying Tiger Copenhagen
Flying Tiger Copenhagen
 Flying Tiger Copenhagen

VERSLUNARSTJÓRI

Flying Tiger á Íslandi leita að metnaðarfullum og áhugasömum aðila í starf verslunarstjóra í verslun þeirra á Akureyri.
Um fullt starf er að ræða og kostur ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Flying Tiger Copenhagen stækkar hratt og er með yfir 900 verslanir í 30 löndum.
Í hverjum mánuði koma yfir 300 nýjar vörur í verslanir okkar og helmingur þeirra er hannaður af hönnunarteyminu okkar.
Grunnhugmynd fyrirtækisins er byggð á að vinnustaðurinn sé afslappaður og lifandi, með starfsfólki sem vinnur heilshugar að markmiðum okkar, finnur fyrir ábyrgð, er vakandi fyrir nýjungum og breytingum og hefur gott ímyndunarafl, sem heldur hlutunum á hreyfingu og í þróun alla daga.
Þú getur lesið meira um Flying Tiger Copenhagen á flyingtiger.com
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á rekstri verslunar og afkomu
  • Innleiðing og viðhald á hugmyndafræði Flying Tiger Copenhagen
  • Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
  • Ábyrgð á útstillingu og uppröðun vara
  • Ábyrgð á starfsmannamálum og þátttaka í uppbyggingu á skemmtilegum vinnustað
  • Skýrslugerð og eftirfylgni með kassauppgjöri
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla í verslunarstjórnun og stjórnun starfsfólks
  • Góð kunnátta og reynsla í Microsoft Office kerfum
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og geta til að vinna undir álagi
  • Metnaður og söludrifni
  • Aðlögunarhæfni og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt17. október 2024
Umsóknarfrestur24. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar