Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Hólagarði - Sala og þjónusta

Við leitum að starfsmanni í sölu og afgreiðslu í Lyfju Hólagarði.

Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun, gott vinnuumhverfi og möguleikar á að þróast í starfi.

Helstu verkefni:

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Afgreiðsla á kassa
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Vinnutími frá 10-18 og annar hver laugardagur 10-14.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Hjörtur Bjarnason, lyfsali Lyfju Hólagarði í síma 577 2600 | thorsteinnb@lyfja.is.

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt14. október 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Lóuhólar 2-6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar