Festi
Festi hf. er eignarhaldsfélag sem í dag rekur fimm rekstrarfélög, N1, Krónuna, ELKO, Bakkann vöruhótel og Festi fasteignir.
Dagleg starfsemi félagsins skiptist annars vegar í rekstur stoðþjónustu fyrir rekstrarfélögin og hins vegar í fjárfestingarstarfsemi.
Hlutastarf í mötuneyti Festi
Festi hf. leitar að þjónustuliprum og samviskusömum aðila til aðstoðar í eldhúsi í mötuneyti félagsins á Dalvegi 10-14, Kópavogi. Um er að ræða 50% starf sem felst í aðstoð við daglegan rekstur mötuneytisins, þar sem um 200 manns eru þjónustaðir. Viðkomandi þarf að geta unnið bæði sjálfstætt og í hóp, haft gott viðmót, mikið frumkvæði og ríka þjónustulund.
Vinnutími er almennt frá 11:00 til 15:00 alla virka daga
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framreiðsla á elduðum mat
- Móttaka á vörum og frágangur
- Áfylling á matvælum og kæli
- Þrif á sal og uppvask
- Aðstoð við innkaup
- Önnur tilfallandi verkefni í eldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi í mötuneyti, eldhúsi eða sambærilegu umhverfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
- Nákvæmni í vinnubrögðum og geta til að vinna undir álagi
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmiss konar heilsueflandi þjónusta í boði í Velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Lyfju, Krónunni og N1.
Auglýsing birt16. október 2024
Umsóknarfrestur31. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Sölufulltrúar óskast í Icewear verslanir á Akureyri
ICEWEAR
Höfuðborgarsvæðið - tímavinna
Vínbúðin
Afgreiðslu og lagerstarf.
Rótgróið fyrirtæki í Reykjavík
Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf
Þjónusta - Apótek Hafnarfjarðar
Apótek Hafnarfjarðar
Afgreiðsla og ráðgjöf
Lyfjaver
Spennandi sérverkefni!
Securitas
Umsjónarmaður verslunar í Borgar Apóteki
Borgar Apótek
Starfsfólk óskast á kaffihús Súfistans
Súfistinn
Afgreiðslustarf á Akureyri
KiDS Coolshop
GÞ skartgripir og úr - Fullt starf við afgreiðslu
GÞ skartgripir & úr ehf
Sous Chef
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstaðir