Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Leikskólastjóri - Tjarnarás

Öflugur og faglegur leiðtogi óskast í stöðu leikskólastjóra í leikskólann Tjarnarás. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir góðum samstarfshæfileikum, er lausnamiðaður og hefur skýra framtíðarsýn um að viðhalda metnaðarfullu leikskólastarfi.

Leikskólinn Tjarnarás er fjögurra deilda leikskóli, staðsettur stutt frá ósnortinni náttúru í Áslandshverfi. Helstu áherslur í starfi leikskólans eru þátttaka, frumkvæði og sköpun þar sem frjáls leikur barna er í fyrirrúmi. Stefna Tjarnaráss er að búa börnunum öruggt og lýðræðislegt lærdómssamfélag þar sem siðgæðisvitund þeirra er efld og lagður grunnur að því að börnin séu sjálfstæðir, hugsandi, skapandi, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðissamfélagi.

Í Hafnarfirði eru íbúar um 30.000, sveitarfélagið rekur 17 leikskóla og er með þjónustusamning við einn til viðbótar. Hafnarfjarðarbær er heilsueflandi vinnustaður og styður við heilsueflingu starfsmanna sinna með fjölbreyttum hætti.

Markmið mennta- og lýðheilsusviðs er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
  • Meginhlutverk leikskólastjóra er að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri leikskólans.
  • Ber rekstrarlega ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
  • Sér um ráðningar starfsmanna, gerð ráðningarsamninga, vinnuskýrslna, skipuleggur vinnutíma starfsmanna og vinnutilhögun.
  • Veitir leikskólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar- og/eða menntunarfræða
  • Stjórnunarreynsla og víðtæk þekking/reynsla af leikskólastarfi
  • Leiðtogafærni
  • Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Þekking á rekstri og opinberri stjórnsýslu
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni og þekking á nauðsynlegum kerfum

Nánari upplýsingar veitir Árný Steindórsdóttir, deildarstjóri leikskólamála, arnyst@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2024

Umsókn um starfið þarf að fylgja greinagóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi leikskólastjóra ásamt afriti af prófskírteini.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt14. október 2024
Umsóknarfrestur28. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Kríuás 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar