Drekadalur - Deildarstjórar
Deildarstjórar óskast við nýjan leikskóla í Reykjanesbæ
Nýr leikskóli, leikskólinn Drekadalur í Innri Njarðvík leitar eftir þremur drífandi, skipulögðum og jákvæðum einstaklingum í störf deildarstjóra sem er tilbúnir að taka þátt í og leiða gott faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi. Um fjölbreytt framtíðarstarf er að ræða sem krefst góðra hæfni í mannlegum samskiptum og stjórnun.
Leikskólinn Drekadalur er sex deilda leikskóli með 120 nemendum. Í Drekadal er lögð áhersla á samvinnu, nýtingu mannauðs og flæði ásamt leik barna sem er gert hátt undir höfði.
Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og situr í stjórnendateymi leikskólans. Hann starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Reykjanesbæ með opnum hug og gleði í hjarta, uppeldi til ábyrgðar aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.
Um er að ræða 100% starfshlutföll frá og með 1. desember 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
- Stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar
- Situr foreldrafundi, starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans
- Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
- Reynsla af vinnu með börnum æskileg
- Stjórnunarreynsla í leikskóla mikilvæg
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og reglusemi
- Góð íslenskukunnátta.