Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel - Hvaleyrarskóli

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% staf fyrir skólaárið 2024-2025 í frístundaheimið Holtasel.

Um er að ræða starfs sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Holtaseli eftir hádeig alla virka daga. Eftir að hefbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. - 4. bekk farið í frístundaheimilið Holtasel. Starfsemi Holtasels er í skólanum. Holtasel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl. 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun baran. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
  • Starfar í frístundaheimili og á sumar- og leikjanámskeiðum
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar
  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is eða Kristinn Guðlaugsson skólastjóri í síma 664-5833 eða í gegnum netfangið kristinn@hvaleyrarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2024.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt14. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Akurholt 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar