Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/
Leikskólar reknir af Garðabæ hafa til úthlutunar sérverkefnasjóð þar sem metnaðarfullir starfsmenn hafa tækifæri til að auka við laun sín.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildarstóra
•    Vinna að faglegu starfi deildar
•    Tekur þátt í foreldrasamvinnu 

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
•    Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
•    Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
•    Ánægja af því að starfa með börnum
•    Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
•    Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
•    Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
•    Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
Auglýsing birt10. október 2024
Umsóknarfrestur23. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Breiðamýri, 225 Garðabæ
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar