

Verkefnaumsjón nýlagna á Suðurlandi
Leggðu línuna til okkar
Við leitum að skipulagðri og ákveðinni manneskju til að sinna verkefnaumsjón nýlagna á Suðurlandi. Manneskju sem kann þá list að hafa mörg járn í eldinum og nokkra bolta á lofti án þess að missa yfirsýnina. Leggðu línuna til okkar og taktu þátt í að skapa trausta undirstöðu fyrir þriðju orkuskiptin á Íslandi.
Verkefnaumsjón nýlagna ber ábyrgð á verk- og verkefnaundirbúningi stærri nýlagna og endurnýjunar á lögnum í dreifikerfinu okkar, t.d. varðandi hönnun og kostnaðarmat, og stýrir verkefnum frá upphafi til enda. Segja má að starfið sé samblanda af hönnunar- og verkefnaumsjón auk þess sem því fylgja samskipti og samningagerð við ytri og innri aðila. Í starfinu felst einnig þjónusta við aðrar deildir og svið hjá okkur eftir því sem við á og að vinna í samræmi við verklagsreglur, verkferla, staðla, öryggisstjórnunarkerfi og gildandi reglugerðir hjá Rarik.
Við leitum að manneskju sem er með skipulagið á hreinu, kann að skapa sér góða yfirsýn og hefur leiðtogahæfileika og ákveðni til að keyra áfram verkefni af ýmsum toga. Rétta manneskjan býr yfir mikilli fjölhæfni og getur skipt um hatt á milli hönnunar og verkefnastjórnunar. Gott er að viðkomandi hafi áhuga á verklegum framkvæmdum og seiglu til að fylgja eftir stórum verkefnum yfir langan tíma. Gerð er krafa um tækni- eða iðnfræðimenntun og iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur. Gott er að umsækjendur hafi reynslu af verkefnastýringu framkvæmdaverkefna og reynslu í hönnun raforku- eða hitaveituvirkja eða góða þekkingu á þeim.












