

Leitum að öflugum „planara“ (Maintenance Planner)
Vilt þú stýra skipulagi viðhalds og áreiðanleika í grunninnviðum samfélagsins?
Við leitum að framsýnum og lausnamiðuðum „planara“ til að leiða skipulag viðhalds hjá rekstrardeild vatnsmiðla hjá Veitum. Deildin ber ábyrgð á daglegum rekstri og viðhaldi dreifikerfa (borholur, geymar, dælustöðvar, hreinsistöðvar, lagnir) sem tryggja örugga og skilvirka þjónustu með áreiðanleika og sjálfbærni að leiðarljósi.
Starfið felur í sér að skipuleggja viðhaldsverkefni sem felur m.a. í sér skipulag varahlutakaupa, útvegun efnis og mannafla. Skipuleggjandi viðhalds ber ábyrgð á skipulagsferlinu og tryggir tímanlega framvindu viðhaldsbeiðna, auk þess að vinna náið með rekstrarstjórum, leiðtogum og deildarstjóra til að viðhalda öryggi, skilvirkni og gæðum.
Skipuleggjandi viðhalds ber ábyrgð á að:
- Skipuleggja viðhaldsvinnu í nánu samstarfi við rekstrarstjóra- og viðhaldsteymi
- Áætla tíma, varahluti og annað sem þarf til að leysa viðhaldsvinnu af hendi með öruggum og skilvirkum hætti
- Tryggja að viðhaldsverk séu unnin með gæði, hagkvæmni og öryggi að leiðarljósi
- Halda utan um viðaldsgögn til frekari greiningar að verki loknu
- Byggja upp árangursdrifnar viðhaldsáætlanir
- Skipulag viðhalds sé í samræmi við gildi Veitna sem eru Frumkvæði - Framsýni - Hagsýni - Heiðarleiki
- Menntun sem nýtist í starfi (t.d. menntun í vélfræði, iðn- og tæknifræði og iðnmenntun)
- Reynslu af skipulagningu viðhalds og áætlanagerðar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góða skipulags- og samskiptahæfileika
- Sterka öryggisvitund og lipurð í samskiptum
Umhverfi þar sem þú hefur áhrif
Rekstrardeildin er hluti af sviði vatnsmiðla sem þjónustar samfélagið með því að tryggja aðgengi að hreinu vatni, fráveitu og hitaveitu. Unnið er eftir skýrum ferlum, með áherslu á öryggi, umhverfisvernd og hagkvæmni, og að sjálfsögðu með þjónustu við viðskiptavini í forgrunni.
Hvers vegna Veitur?
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tryggir aðgengi að rafmagni, hita, vatni og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.
Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2025. Nánari upplýsingar veitir Björn Pálsson leiðtogi rekstrar og viðhalds Vatnsmiðla hjá Veitum, á netfanginu [email protected].











