Rými
Rými
Rými

Verkefnastjóri rafmagns / rafvirki

Vegna aukinna verkefna leitum við að verkefnastjóra rafmagns til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar. Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur, stundvís, hafa framúrskarandi samskiptahæfileika ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt við uppsetningar, bilanaleit og viðgerðir. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.

Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936 en við höfum verið framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo síðastliðin 7 ár. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni, lyftum, sjálfopnandi hurðum og ýmsum búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með þjónusta á tæknibúnaði í samvinnu við næsta yfirmann
  • Samskipti við viðskiptavini innri sem ytri
  • Mikil hæfni í bilanaleit og viðgerðum á rafbúnaði
  • Úttektir á tæknibúnaði
  • Tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun
  • Sjálfstæð vinnubrögð, útsjónarsemi og fagmennska
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift
  • Vinnuföt
  • Vinnubíll
Auglýsing birt19. september 2025
Umsóknarfrestur30. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gylfaflöt 2-4 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.RaffræðingurPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar