
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.

Eftirlit brunakerfa
Við hjá Securitas erum að leita af kraftmiklum einstaklingi til þess að slást í teymið okkar. Ert þú tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni sem við kemur brunavörnum og öryggismálum?
Starfið snýr að úttekt á brunaviðvörunarkerfum fyrir viðskiptavini okkar með eftirliti og prófun kerfa.
Ef þú...
- Hefur reynslu og/eða menntun í rafiðnaði (eða rafgreinum)
- Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hefur metnað og sýnir frumkvæði til þess að takast á við krefjandi verkefni
- Býrð yfir íslenskukunnáttu, bæði rituðu og töluðu máli
...þá erum við að leita af þér!
Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00, stytting vinnuvikunnar á föstudögum.
Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum er svarað.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigmundur Ísak Þorsteinsson, deildarstjóri, í síma 580-7000.
Auglýsing birt17. september 2025
Umsóknarfrestur1. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurRafeindavirkjunRafvirkjunSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

ÖRYGGISFULLTRÚI / RAFVIRKI
atNorth

Ert þú með ástríðu fyrir rafiðnaði?
Reykjafell

Starfsmaður í eignaumsýslu - Tímabundin afleysing vegna fæðingarorlofs
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Rafvirki óskast til starfa
Heitirpottar.is

Starfsmaður í þjónustudeild Kælitækni
Kælitækni ehf

Viðhalds- og tæknistjóri
Arna

Vélamaður
Emmessís ehf.

Tæknimaður
Emmessís ehf.

Vélvirki/rafvirki hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Rafvirki í rafmagnsþjónustu
Norðurorka hf.

Verkfræðingur eða tæknifræðingur í rekstri raforkukerfa
Rio Tinto á Íslandi

Deildarstjóri Raf- og stjórnkerfa
Orka náttúrunnar