Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Verkefnastjóri í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar

Um er að ræða spennandi starf verkefnastjóra í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar. Tómstundamiðstöð er líflegur og fjörugur vinnustaður. Helstu verkefni Tómstundamiðstöðvar er að halda utan um starf félagsmiðstöðva og vinnuskóla, verkefnið barnvænt sveitarfélag, forvarnarstarf, vettvangsstarf og innleiðingu tómstundastefnu Reykjanesbæjar og fleira.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags.
  • Vinnur að markaðsmálum fyrir Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar.
  • Tengiliður við ungmennaráð Reykjanesbæjar.
  • Vinnur að þróun sértæks hópastarfs.
  • Vinnur að stefnumótun í málaflokknum.
  • Tekur virkan þátt í þjálfun starfsmanna og kynningum á starfinu.
  • Ýmis viðburðarstjórnun á vegum Tómstundamiðstöðvar Reykjanesbæjar.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur  uppeldismenntun.
  • Reynsla af stjórnunarstarfi innan málaflokksins er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótun er kostur.
  • Starfið krefst fræðilegrar þekkingar sem byggir á kenningalegum grunni.
  • Þekking á réttindum barna.
  • Þekking á ungmennalýðræði.
  • Góð þekking á skipulagi, verklagi, stefnu og stjórnsýsluháttum stofnunar.
    Starfið krefst færni í að greina, skapa og þróa lausnir og túlka fjölbreyttar upplýsingar eða aðstæður.
  • Starfsmaður þarf að vera fær um að móta áætlanir til framtíðar (meira en ár).
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.
  • Skipulagshæfni og góð færni í ritun.
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt17. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hafnargata 88, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar