

Verkefnastjóri Geðheilsumiðstöð barna
Hefur þú brennandi áhuga á verkefnastjórn, skipulagningu og mannauðsmálum ?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að jákvæðum og drífandi verkefnastjóra til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga.
Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Verkefnastjóri heyrir undir forstöðumann GMB og er jafnframt staðgengill hans. Ráðið er í starfið frá 1. mars n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% ótímabundið starf.
- Ráðgjöf og þjónusta við starfsfólk og þjónustuþega.
- Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna GMB
- Þátttaka í úttektum og framsetningu tölulegra gagna um þjónustuna
- Fræðsla og þjálfun stjórnenda og starfsfólks
- Gæða- og öryggismál
- Gerð kynninga og fræðsluefnis um starfsemina.
- Gerð og uppfærsla starfslýsinga.
- Þjónustukannanir og árangursmælingar
- Afgreiðsla fyrirspurna vegna auglýstra starfa og mannauðstengdra mála hjá GMB
- Upplýsingagjöf vegna almennra fyrirspurna um starfsemi GMB
- Þátttaka í ráðningarferli starfsfólks GMB
- Utanumhald styrkumsókna
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla að verkefnum tengt gæðum og öryggi í heilbrigðisþjónustu
- Þekking á mannauðskerfum ríkisins, kostur
- Þekking og reynsla af gerð kynninga og fræðsluefnis.
- Þekking og reynsla af mannauðsmálum.
- Áhugi og reynsla af gerð árangurs- og þjónustukannana.
- Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála kostur
- Þekking á starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu skilyrði
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Fagmennska og vilji til að veita frábæra þjónustu
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Framsýni og umbótahugsun
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta

















