![Alcoa Fjarðaál](https://alfredprod.imgix.net/logo/cc609132-0f7e-43b4-8fd9-1726afdf3333.png?w=256&q=75&auto=format)
Alcoa Fjarðaál
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hóf starfsemi árið 2007. Fjarðaál er eitt af nútímalegustu og tæknilega fullkomnustu álverum heims og er fyrirmynd hvað varðar umhverfisvernd og jafnréttismál. Álverið er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári.
Álver Alcoa Fjarðaáls er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gildi okkar eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum. Við höfum stöðugar umbætur að leiðarljósi og leggjum áherslu á þátttöku allra í umbótavinnu. Við viljum líka hafa gaman í vinnunni og láta gott af okkur leiða í samfélaginu á Austurlandi.
Samkeppnishæf launakjör og aðbúnaður til fyrirmyndar
Fjarðaál greiðir samkeppnishæf laun og aðbúnaður starfsmanna er til fyrirmyndar. Við fáum meðal annars ókeypis akstur til og frá vinnu og frítt fæði í frábæru mötuneyti. Við erum með öflugt mannauðsteymi og höfum okkar eigin heilsugæslu og aðgang að Velferðarþjónustu Heilsuverndar.
Fjölbreytt störf og mikil tækifæri til starfsþróunar
Fastráðnir starfsmenn Fjarðáls eru um 540 og þar að auki starfa um 250 manns á vegum annarra fyrirtækja í álverinu. Störfin hjá Fjarðaáli eru afar fjölbreytt og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Móðurfélagið Alcoa Corporation er leiðandi í áliðnaði á heimsvísu og þar eru líka tækifæri til starfsþróunar.
![Alcoa Fjarðaál](https://alfredprod.imgix.net/adcover/is-c327d374-58ac-46d1-9470-f6f8011c1711.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri fjárfestinga / Capital Projects Manager
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í tímabundið starf verkefnastjóra fjárfestinga í framleiðsluþróunarteymi til 1. ágúst 2025 með möguleika á framlengingu. Álver Alcoa Fjarðaáls er hátæknivætt og hefur stöðugar umbætur að leiðarljósi. Verkefnastjóri fjárfestinga stýrir fjölbreyttum fjárfestingarverkefnum frá undirbúningi til verkloka og sér til þess að verkefnin uppfylli gæðakröfur og séu unnin á öruggan hátt innan tímaramma og kostnaðaráætlana.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skilgreina og skipuleggja fjárfestingarverkefni
- Áætla framkvæmdatíma, mannaflaþörf og kostnað
- Afla samþykkis og fjármögnunar fyrir verkefni
- Tryggja að verkefni samræmist stefnu, stöðlum og reglum Alcoa
- Vinna útboðsgögn og annast samskipti við birgja og verktaka
- Tryggja gott upplýsingaflæði og fylgja eftir framkvæmd verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starf
- Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla eftir háskólapróf
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Skipulagshæfileikar og samskiptahæfileikar
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
Gott mötuneyti
Rútuferðir til og frá vinnu
Velferðaþjónusta
Auglýsing stofnuð24. júní 2024
Umsóknarfrestur7. júlí 2024
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Hraun 1, 731 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
![Háskólinn í Reykjavík](https://alfredprod.imgix.net/logo/963d0ad0-b0c7-4791-872c-d7a4fbd6b426.png?w=256&q=75&auto=format)
Forstöðumaður grunnnáms í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólinn í Reykjavík
![CCP Games](https://alfredprod.imgix.net/logo/7bdfde97-fd7b-4e75-8176-346231890ef4.png?w=256&q=75&auto=format)
Growth Marketing Specialist
CCP Games
![Deloitte](https://alfredprod.imgix.net/logo/ac338dcf-80c9-4ac5-a43f-c25513079512.png?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf
Deloitte
![Deloitte](https://alfredprod.imgix.net/logo/ac338dcf-80c9-4ac5-a43f-c25513079512.png?w=256&q=75&auto=format)
Viltu nýta menntun þína á sviði sjálfbærni
Deloitte
![Langisjór | Samstæða](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-4a26fb2b-2e74-4e13-a967-9192cb7d7950.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Verkefnastjóri
Langisjór | Samstæða
![Alvotech hf](https://alfredprod.imgix.net/logo/cb021b67-577e-430f-9f8c-d92ad5c70fa8.png?w=256&q=75&auto=format)
Commissioning and Qualification Specialist
Alvotech hf
![Háskólinn á Hólum](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-c6fb2995-1211-49a8-b64a-eb97be0b175c.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Fjármálasérfræðingur
Háskólinn á Hólum
![Húnaþing vestra](https://alfredprod.imgix.net/logo/499771a1-2c84-40e0-bfa9-1b3c93f8b081.png?w=256&q=75&auto=format)
Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs
Húnaþing vestra
![Löggiltir endurskoðendur ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-fb146b2d-ba88-4dc3-b1e6-4ed9378ea2be.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingar í bókhaldi og/eða uppgjörum
Löggiltir endurskoðendur ehf
![Eldsneytisafgreiðslan EAK ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/e17784fb-f85d-44a2-8a66-668279b1617d.png?w=256&q=75&auto=format)
Gæða- og öryggisstjóri
Eldsneytisafgreiðslan EAK ehf.
![Hrafnista](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ff27d689-8902-4e45-8846-f28cebfc9b93.png?w=256&q=75&auto=format)
Bókhald og uppgjör
Hrafnista
![Húsnæðis- og mannvirkjastofnun](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-32912bf6-80d6-4a26-a826-2112f0da9874.png?w=256&q=75&auto=format)
Sérfræðingur í landeignaskráningu
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun