Verkís
Verkís
Verkís

Vélaverkfræðingur eða véltæknifræðingur á Iðnaðarsvið

Á Iðnaðarsviði Verkís vinnum við að því að þróa og hanna lausnir fyrir framtíðina. Við erum teymi sérfræðinga sem sameinar reynslu, frumkvæði og þekkingu í verkefnum sem spanna allt frá hugmyndastigi til uppsetningar á verkstað.

Nú leitum við að vélaverkfræðingi eða véltæknifræðingi til liðs við okkur til að vinna að áhugaverðum verkefnum s.s:

  • Hönnun vélbúnaðar, stálvirkja og lagnakerfa fyrir fjölbreyttan iðnað m.a. fiskeldi, lyfjaiðnað, matvælaiðnað og gagnaver.
  • Frumathuganir, valkostagreiningar, útboðshönnun og yfirferð á hönnun verktaka.
  • Þátttaka í útboðum, ráðgjöf og eftirliti með uppsetningu búnaðar á verkstað.

Við leitum að einstaklingi sem hefur heiðarleika, metnað og frumkvæði að leiðarljósi ásamt því að vera lausnamiðaður, skipulagður og sterkur í teymisvinnu. Viðkomandi fær tækifæri til að þróa sína sérþekkingu í samstarfi við öflugan hóp fagfólks sem leggur áherslu á að miðla og afla sér nýrrar þekkingar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í vélaverkfræði eða véltæknifræði
  • Reynsla af hönnun og þróun iðnaðarkerfa, lagnakerfa, stálvirkja og tengdra mannvirkja
  • Þekking á hönnunarforritum eins og Revit, Inventor eða Solidworks
  • Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt22. september 2025
Umsóknarfrestur5. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar