Verkís
Verkís
Verkís

Aðstoðarmaður sviðsstjórnar

Á Iðnaðarsviði Verkís erum við að byggja upp nýjan og spennandi málaflokk þar sem unnið er að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum fyrir íslenskan og alþjóðlegan iðnað.

Nú leitum við að öflugum og skipulögðum aðstoðarmanni til að styðja við stjórnendur sviðsins í daglegum verkefnum.

Þetta er fjölbreytt starf þar sem aðstoðarmaður sviðsstjórnar er mikilvægur hlekkur í daglegri starfsemi sviðsins. Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, skipulagður, þjónustulundaður og nýtur þess að hafa yfirsýn yfir verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkbókhald, tímaskráning og umsjón með ferðabókunum.
  • Skjalastjórnun og skjalavinnsla.
  • Móttaka nýs starfsfólks og umsjón með mannauðskerfi sviðsins.
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta, góð þekking í Word og Excel.
  • Reynsla af Microsoft Dynamics NAV er kostur.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt ríkri þjónustulund.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
Auglýsing birt22. september 2025
Umsóknarfrestur5. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar