

Umsjónarmaður fasteigna óskast til starfa.
Umsjónarmaður fasteigna óskast til starfa hjá Heilsuvernd.
Við leitum að öflugum og handlögnum umsjónarmanni fasteigna til að sinna viðhaldi og hafa umsjón með fasteignum samstæðunnar á höfuðborgarssvæðinu og sinna daglegri húsvörslu í húsnæði okkar að Vífilsstöðum. Starfsstöðvar viðkomandi eru í Heilsuvernd Urðarhvarfi og á Vífilsstöðum í Garðabæ.
Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu. Við leitum að handlögnum og drífandi einstaklingi með jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi. Ráðið verður í 80-100% starfshlutfall eftir samkomulagi.
- Ábyrgð á daglegri húsvörslu og umsjón með kerfum húsnæðis að Vífilsstöðum.
- Umsjón með ýmsum búnaði og tækjum sem og öðrum húsbúnaði fasteigna.
- Sér um viðhald, lagfæringar og þrif byggingar og húsbúnaðar.
- Úttekt á ástandi fasteigna og gerð viðhalds- og viðgerðaráætlunar.
- Sinnir viðhaldi og lagfæringum ásamt umhirðu á lóðum fasteigna samstæðunnar.
- Iðnmenntun er æskileg en ekki nauðsynleg.
- Reynsla eða þekking af iðnaðarstörfum eða starfi húsvarðar.
- Reynsla af sambærilegum verkefnum.
- Reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf fasteigna.
- Viðkomandi þarf að hafa bílpróf.
- Samskiptahæfni og rík þjónustulund eru nauðsynleg.
- Jákvætt viðhorf og færni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð eru nauðsynleg.
- Góð færni í íslensku.











