
Austurbæjarskóli
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á hugarfar vaxtar, víðsýni, vellíðan og vilja til að gera stöðugt betur.
Markmið skólans er að auka þekkingu og leikni nemenda og gera þá að farsælum og sjálfstæðum einstaklingum. Einstaklingum sem hafa trú á eigin getu og takast óhræddir á við nýja hluti í viðleitni sinni við að finna hæfileikum sínum og hæfni farveg.
Umsjónarkennari í unglingadeild. Kennslugrein: stærðfræði
Frá og með 1. ágúst 2025 er laus er til umsóknar staða stærðfræðikennara í unglingadeild í Austurbæjarskóla. Um er að ræða tímabundna ráðningu er að ræða. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
- Vinna í teymi með öðrum kennurum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Menntun og hæfni til að sinna bekkjarkennslu og starfa með börnum.
- Reynsla og áhugi á kennslu nemenda með fjölbreyttar þarfir.
- Kunnátta, hæfni og reynsla af lestrarkennslu mikilvæg.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt6. ágúst 2025
Umsóknarfrestur19. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ævintýraborg við Eggertsgötu

Leikskólakennari óskast í leikskólann Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból

Heimilisfræðikennari í Garðaskóla
Garðabær

Kennari
Víkurskóli

Leikskólakennari/leiðbeinandi
Ungbarnaleikskólinn Ársól

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast
Leikskólinn Sjáland

Leikskólakennarar
Leikskólinn Sumarhús

Leikskóli Húnabyggðar
Húnabyggð

Norðlingaskóli – Umsjónarkennari á miðstig
Norðlingaskóli

Skólaliði við Eskifjarðaskóla
Fjarðabyggð

Tónmenntakennara vantar í Salaskóla
Salaskóli