
Kennari
Víkurskóli, Vík í Mýrdal, óskar eftir að ráða kennara til starfa. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í ágúst nk.
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Almenn kennsla
· Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
· Vinna samkvæmt stefnu skólans
· Vinna að því að skapa góðan skólabrag
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leyfisbréf til kennslu
· Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
· Góð færni í samvinnu og samskiptum
· Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
· Áhugi á starfi með börnum og metnaður til að þróa öflugt skólastarf
Við bjóðum upp á:
· Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk
· Mjög góður starfsandi og liðsheild
· Fjölbreytt og öflugt skólastarf
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is.













