

Tungumálakennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Laus er staða tungumálakennara við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar frá og með 1.ágúst 2025.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsi. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.
Leitað er að lausnarmiðuðum umsjónarkennara sem er tilbúinn að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
- Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Að vinna við námsmat í Mentor, nemendaskrár og aðrar nauðsynlegar skýrslur.
- Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
- Starfar með umsjónarkennurum og námsráðgjöfum og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
















































