Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Kennari fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál, ÍSAT

Eskifjarðarskóli auglýsir eftir kennara fyrir nemendur með annað tungumál, ÍSAT. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst n.k.

Í Eskifjarðarskóla eru 140 nemendur í 1. til 10. bekk, áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks. Í skólanum eru einnig til húsa: tónlistarskólinn, bókasafn bæjarins, elsta deild leikskólans og frístundin.

Einkunnarorð skólans eru: Áræði, færni, virðing og þekking.

Lögð er áhersla á skemmtilegt og skapandi skólastarf, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá
  • Vinnur að móttökuáætlun skólans
  • Vinnur samkvæmt viðmiðun um kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál - ÍSAT
  • Ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi nám og kennslu
  • Aðlögun á námsefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á kennslu barna með íslensku sem annað tungumál
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt1. apríl 2025
Umsóknarfrestur13. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar