Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Treasury Director

Please see our website for an English version.

Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?

Fjármálasvið Embla Medical (áður Össur) leitar að metnaðarfullum aðila til að leiða fjárstýringu félagsins (Treasury Director). Treasury Director hefur yfirumsjón með fjárstýringardeild félagsins, svo sem lausafjárstýringu, bankasamskipti, fjármögnun og áhættustýringu. Starfið krefst góðra leiðtoga- og greiningarhæfni með getu til að vinna í alþjóðlegu fjármálaumhverfi. Starfinu geta fylgt ferðalög vegna samskipta við bankastofnanir á meginlandi Evrópu.

Helstu verkefni og ábyrgð
 
  • Þróa og innleiða stefnumarkandi áætlanir fyrir fjársýslu félagsins, sem leiða til bestunar á lausafjárstöðu og lágmarka fjárhagslega áhættu. 

  • Hafa umsjón með lausafjárstýringu, tryggja góða lausafjárstöðu og lágmarka viðskiptakostnað. 

  • Stýra bankasamskiptum og semja um hagstæð kjör fyrir fjármögnun og bankaþjónustu. 

  • Fylgjast með og stýra fjárhagslegri áhættu, svo sem vaxta-, gjaldeyris- og útlánaáhættu, auk þess að innleiða áhættuvarnir. 

  • Stjórnun og innleiðing alþjóðlegs fjárstýringarkerfis. 

  • Umsjón með daglegum verkefnum innan fjárstýringar. 

 
Menntunar- og hæfniskröfur
 
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði viðskipta-, hag- eða verkfræði. 

  • Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla innan fjárstýringar eða tengdra starfa með reynslu í stjórnun innan fjárstýringar og fjárhagslegrar áhættu. 

  • Mjög góður skilningur á fjármálamörkuðu, fjárstýringu, fjármálagerningum og áhættustýringaraðferðum. 

  • Mjög góð tök á Excel og er þekking á Kyriba fjárstýringarkerfi kostur. 

  • Hæfni til að tjá sig reiprennandi á ensku er skilyrði. 

  • Góð hæfni í verkefnastýringu til að takast á við margvíslegar áherslur og standa skil á tímamörkum, stjórnun hagsmunaaðila, leiðtogahæfni, er sjálfstæður og hefur frumkvæði. 

Auglýsing birt28. október 2024
Umsóknarfrestur10. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar