
Þroskaþjálfi - Gerðaskóli
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum þroskaþjálfa í fullt starf til að taka þátt í öflugu skólastarfi með okkur.
Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur og leggur skólinn áherslu á samþættingu námsgreina, útinám, hæfnimiðað námsmat og skynvænt námsumhverfi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi.
Gildi skólans eru; virðing – ábyrgð - árangur – ánægja
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, www.gerdaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að veita nemendum með sérþarfir þjálfun, leiðsögn og stuðning
- Vinna með félagsfærni og aðlaga námefni og námsaðstæður
- Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur
- Vinna að gerð einstaklingsnámskrám í samstarfi við kennara og deildarstjóra
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Reynsla af vinnu með nemendum sem þurfa sérstakan stuðning í námi
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla, [email protected] eða í síma 425-3050.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og annað er málið varðar.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










