
Kennarar í Sandgerðisskóla skólaárið 2026-2027
Sandgerðisskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum í fullt starf fyrir skólaárið 2026-2027.
Umsjónarkennari á yngsta stigi
Umsjónarkennari á miðstigi
Umsjónarkennari á unglingastigi
Kennari í sjónlistum
Sérkennari
Kennari í hönnun og smíði
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026 og ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2026.
Sandgerðisskóli er vel búinn, heildstæður fjölmenningarlegur grunnskóli með um 320 nemendur og við skólann starfar samheldinn hópur metnaðarfullra starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf er við Leikskólann Sólborg, félagsmiðstöðina Skýjaborg og Tónlistarskóla Sandgerðis.
Gildi skólans eru; vöxtur – virðing – vilji – vinátta.
Lögð er áhersla á vellíðan og framfarir nemenda, gott samstarf innan skólans og við samfélagið. Viðkomandi þarf að vera reiðubúinn að setja sig inn í starfshætti skólans, vinna í teymi að því að mæta ólíkum einstaklingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt.
Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnu uppeldis til ábyrgðar með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans, www.sandgerdisskoli.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
- Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri Sandgerðisskóla, [email protected] eða í síma 425-3100.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, kynningarbréf ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og annað er málið varðar.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










