

Hofsstaðaskóli - þroskaþjálfi
Hofsstaðaskóli óskar eftir þroskaþjálfa í 50 til 100% starf. Þroskaþjálfi er hluti af öflugri stoðþjónustu skólans og vinnur í teymi með öðrum fagaðilum, m.a. öðrum þroskaþjálfum og deildarstjóra stoðþjónustu. Í Hofsstaðaskóla verða 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum mjög góð. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda skólastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og áhersla er lögð á lesskilning og ritun.
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla
- Vinna með nemendum með sérþarfir
- Vinna að gerð einstaklingsnámskrár, áætlanagerð, aðlögun námsefnis og mati á færni nemenda í samvinnu við kennara og stoðþjónustu skólans
- Leiða teymisvinnu varðandi einstaklingsmiðað nám, kennslu, færniþjálfun og leiðir
- Veita ráðgjöf til kennara og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Leyfisbréf sem þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Þekking á helstu leiðum í vinnu með nemendum sem þurfa séhæfð úrræði
- Reynsla af skólastarfi eða öðru starfi með börnum er æskileg
- Góð samskipta- og skipulagsfærni
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Faglegur metnaður, frumkvæði og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfann starfsmann sem vinnur þá undir handleiðslu og stjórn deildarstjóra sérkennslu og stoðþjónustu.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Íslenska

















