Þroskaþjálfi eða starfsmaður með sálfræðimenntun
Þroskaþjálfi eða starfsmaður með sálfræðimenntun óskast til starfa í leikskólanum Stakkaborg. Leikskólinn er staðsettur í Bólstaðahlíð 38 og er í stækkunarferli en verður 5 deilda leikskóli í janúar. Stakkaborg er rótgróinn skóli miðsvæðis í Reykjavík.
Í daglegu starfi er lögð áhersla á flæði og frjálsan leik. Starfið er laust frá janúar 2025. Í starfinu felst að fylgja eftir barni með einhverfu og veita því stuðning í daglegum athöfnum, veita þjálfun og stuðning við barnið inni á deildinni. Þekking á Pecs og TMT er mikill kostur. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi en enginn dagur er eins í leikskólastarfinu. Við erum með flottan starfsmannahóp sem vinnur saman með virðingu, jákvæðni og samvinnu að leiðarljósi. Hér er gott að starfa og viljum við að starfsmenn séu virkir þátttakendur í starfi og stefnu leikskólans.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár og fylgja henni eftir.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og örðum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.
- Þroskaþjálfaramenntun eða menntun í sálfræði er kostur.
- Reynsla af sékennslu æskileg.
- Þekking á Pecs og Tákn með tali.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiputum.
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
- Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði.
- 36 stunda vinnuvika.
- Frír hádegismatur.
- Heilsustyrkur.
- Menningarkort