Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.
Heilsuleiksk. Bæjarból leitar að leikskólakennara í stuðning
Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara til að sinna stuðningi við barn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikgleði - Agi - Lífsleikni
Leikskólastjórar eru Auður Ösp Guðjónsdóttir og Harpa Dan Þorgeirsdóttir
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að sinna barni með sérþarfir
- Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
- Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Menntun á sviði sérkennslufræða, sálarfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun er æskileg
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig B2 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögðum
Hlunnindi
- Á Bæjarbóli er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ.
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
- Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf.
Auglýsing birt15. nóvember 2024
Umsóknarfrestur5. desember 2024
Tungumálahæfni
Íslenska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Leikskólakennari /Þroskaþjálfi
Leikskólinn Vinaminni
Flataskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í 6.bekkjar teymi
Flataskóli
Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð
Kennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Leikskólar LFA - Viltu vera með ?
LFA ehf.
Stuðningur fyrir nemendur með mikla stuðningsþörf
Arnarskóli
Leikskólakennari/leiðbeinandi leikskólinn MIðborg
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið
Deildarstjóri leikskólinn Miðborg
Reykjavíkurborg
Sérkennsla í Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði
Teymisstjóri meðferðarteyma á göngudeild barna- og unglingageðdeild
Landspítali
Tónmenntakennari í afleysingar út skólaárið, frá 1. janúar 2025 - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Heimilisfræðikennari - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær