Leikskólakennari /Þroskaþjálfi
Leikskólakennari, þroskaþjálfi !
Hvernig væri að skoða nýjan starfsvettvang og prófa að starfa á sjálfstæðum leikskóla sem leggur aðaláherslu á metnaðarfullt skólastarf með börnunum.
Laus er til umsóknar 75% staða leikskólakennara, þroskaþjálfa sem er tilbúinn að starfa með barni með sérþarfir í leikskólanum Vinaminni Asparfelli 10 111 Reykjavík
Í Vinaminni er unnið með grunnþætti menntunar eins og segir í aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins.
Einnig eru hugmyndir Beritar Bae lagðar til grundvallar þar sem einblínt er á samskipti barna og fullorðinna með þroskamöguleika þeirra beggja að leiðarljósi hvað varðar þróun sjálfsins.
Komdu og kynntu þér betur metnaðarfullt, skemmtilegt og fræðandi starf Vinaminnis.
Það væri akkur fyrir börnin í Vinaminni að fá þig í lið með okkur og efla það góða starf sem unnið er í skólanum.
Umsóknir ásamt ferilskrá og mynd sendist á netfangið vinaminni@vinaminni.is
Frekari upplýsingar í síma 587-0977 eða í síma 8618055
Hlakka til að heyra frá þér.
Sólveig framkvæmdarstjóri .
Verkefni og ábyrgð felast í því að styðja við nám barns með sérþarfir. Viðkomandi starfsmaðurinn þarf að fylgja barninu, leiðbeina því og kenna því í öllum leik og starfi skólans. Einnig þarf viðkomandi að gera einstaklingsnámskrá í samstarfi við sérkennslustjóra og foreldra og starfa eftir henni í hvívetna, gera skráningar og geti unnið með atferlisþjálfun.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi uppeldis-og -eða kennslufræði menntun á sviði leikskólakennara, þroskaþjálfa eða aðra sambærilega menntun svo sem bestu árangur náist í kennslu barnsins.
Afar mikilvægt er að viðkomandi hafi mjög gott vald á íslensku mál.